
Nýir pallar
Við smíðum palla sem falla að húsinu og því hvernig þú vilt nýta útisvæðið. Við förum yfir stærð, form og efnisval með þér.
Ræðum verkefnið
Pallasmíði · endurnýjun · viðgerðir
Nýr pallur eða nýtt líf í þann gamla. Við sjáum um pallasmíði á höfuðborgarsvæðinu og í nærliggjandi sumarhúsabyggðum, með skýru ferli og vönduðum frágangi.
Pallarnir okkar
Hvort sem þú byrjar frá grunni eða vilt bæta það sem fyrir er, finnum við réttu leiðina með þér.

Við smíðum palla sem falla að húsinu og því hvernig þú vilt nýta útisvæðið. Við förum yfir stærð, form og efnisval með þér.
Ræðum verkefnið
Við metum ástand eldri palls, skoðum burðarvirkið og endurnýjum það sem þarf — frá stökum borðum að heildarendurnýjun.
Ræðum verkefnið
Skjól, aðgengi og frágangur gera pallinn að betra útisvæði. Við útfærum skjólveggi, handrið og tröppur með heildina í huga.
Ræðum verkefniðViðgerðir á eldri pöllum
Slitin borð eða lausar festingar þýða ekki alltaf að byggja þurfi nýjan pall. Við skoðum yfirborð, burðarvirki og undirstöður og metum hvað má halda og hvað þarf að endurnýja.
Fá mat á pallinumFrá fyrstu skoðun að frágangi
Þú veist hvað er innifalið, hvernig verkið gengur og hvað gerist næst.
Við förum yfir aðstæður, óskir þínar og ástand pallsins ef hann er þegar til staðar.
Þú færð tillögu að umfangi, efnisvali og kostnaði áður en verkið hefst.
Við skipuleggjum framkvæmdina og höldum þér upplýstum frá fyrstu undirstöðu að síðasta borði.

Það sem liggur undir skiptir máli
Útlitið er aðeins hluti af verkinu. Undirstöður, burðarvirki og frágangur þurfa að henta aðstæðum og notkun pallsins.
Reynsla viðskiptavinar
„Vættir endurnýjuðu pallin í bústaðnum hjá mér. Þeir voru vandvirkir og gengu vel um“
Aron Þór PéturssonSumarbústaðar eigandi í Grímsnesi
Tökum fyrsta skrefið
Segðu okkur stuttlega frá verkefninu. Er þetta nýr pallur, endurnýjun eða minni viðgerð? Við förum yfir næstu skref með þér.